Selsættin
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 200 dögum
Ættarmót á Syðra-Seli
Selsættin
Afkomendur Böðvars Guðmundssonar og Fjólu Elíasdóttur frá Syðra-Seli
Áhugavert
12.03.2009 13:11:39 / sydrasel

Afmæliskveðjur

Jæja eitthvað hefur gleymst að láta inn afmæliskveðjur ;)  en við reddum því :)

Elsa Sigrún átti afmæli 11 febrúar
Þórhildur og Margrét Lilja áttu báðar afmæli 18 febrúar
Ragna átti afmæli 22 febrúar
Jón Gunnar átti afmæli 1 mars
Kamilla Rós og Þóra Guðrún áttu báðar afmæli 7 mars

Til hamingju með afmælið öll :) vona að þið áttuð frábæran dag :haha:

Einnig tjáið ykkur endilega og látið vita að þið kíkið á síðuna. Ef þið viljið blogga eitthvað þá endilega gerið það :)

Kveðja í Hafnarfirði
F.S



» 0 hafa sagt sína skoðun

06.03.2009 10:12:34 / sydrasel

Afmæli

Allir sem áttu afmæli í febrúar. Innilegar hamingju óskir með afmælið. Bæði sunnan heiða og norðan.
Jón Gunnar átti afmæli 1. mars og Jón Gunnar minn til hamingju með afmælið og gangi þer vel að (krossa) hjóla í dag með vinum þínum í Þykkvabænum.
Annas fullt að gera, hjónaball annað kvöld og bara gaman. Annas allt gott og kveðjur til ykkar sem fara inn á þessa síðu og þið megið alveg skrifa,  þó það sé bara "hæ eða bæ"
kveðja úr sveitinni

» 0 hafa sagt sína skoðun

04.02.2009 13:47:59 / sydrasel

Brúðkaupsafmæli

Elsku Fjóla & Ægir
Til hamingju með þriggja ára brúðkaupsafmælið (leður afmælið)
gangi ykkur allt i haginn
komum á eftir og pössum prinsa og prinsessuna
knús og kossar
mamma & pabbi:lol:

» 2 hafa sagt sína skoðun

02.02.2009 13:48:01 / sydrasel

Jóakim

Ótrúlegt mér finnst svo stutt síðan Jóakim Jóhannsson fæddist en hann er 11 ára í dag drengurinn!!!!!  ( það segir mér að ég er að verða gömul haha..... segji bara eins og amma, maður er bara eins gamall og manni finnst maður vera ;))

Elsku Jóakim
Innilega til hamingju með daginn,
vona að dagurinn verði skemmtilegur og afmælið heppnist vel á eftir
knús og koss
Fjóla :haha:




» 2 hafa sagt sína skoðun

28.01.2009 21:52:53 / sydrasel

Afmæliskveðjur og fleirra

Jæja ég ætla að byrja á þeim afmæliskveðjum sem eiga eftir að koma :)

Böðvar Ingi Hafdísarson átti 1 árs afmæli þann 17 janúar :) innilega til hamingju með það :)

Svo átti hún Kristín Þórsdóttir, mágkona mín og eignkona bróður míns og tengdadóttir móðir minnar afmæli 25.janúar.  Innilega til hamingju með það :)


Einnig vil ég benda á það að það er komin ný niðurtalning en það er niðurtalningin í ættarmótið :)    Ættarmótið verður á Syðra-Seli þetta árið og vona ég að sem flestir koma :)  Það er alltaf mikið stuð og alltaf gaman að hittast.   Ættarmótið verður 23 - 25 júli :)  
Þið getið kíkt á myndirnar hérna til hliðar til að sjá hvað það er alltaf gaman hjá okkur ;) á ættarmótinu fyrir 2 árum  á seli :)

Endilega líka verið dugleg að skrifa á þessa síðu og minna á ykkur :)

kveðja
Fjóla Sigrún


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.01.2009 10:44:12 / sydrasel

afmæliskveðjur

Elsku Guðmundur  "FRÆNDI" og Eva Dís
Innilegar hamingju óskir með daginn í gær. Frændi orðin löggiltur  !!!
vonandi hafið þið átt góðan dag
kveðja Agnes og Valdi

» 1 hafa sagt sína skoðun

14.01.2009 17:20:26 / sydrasel

Afmæliskveðjur

Jæja....  afmæliskveðjurnar eiga það til að koma ekki á réttum tíma en betra er seint en aldrei ;)

Þorsteinn Ari átti afmæli 2 janúar :) Innilega til hamingju með það :)

Svo átti Frú Agnes Böðvarsdóttir hálfaldra afmæli 11 janúar ;)  Hún hélt upp á það með þvílíkri veislu í félagsheimilinu á Flúðum :d Það var þvilikt stuð langt fram á nótt :) 
Til hamingju með 50 árin elsku Agnes mín :) knús og kossar :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.01.2009 21:39:12 / sydrasel

Tilkynning.

Nýjárskveðjur til allra og heillaóskir til þeirra sem átt hafa afmæli en ekki fengið kveðju.

TILKYNNING.

Þann 11.janúar nk. verður húsfrúin á Seli hálfrar aldar gömul. Af því tilefni ætlum við að efna til teitis þann 10. janúar í Félagsheimili Hrunamanna kl. 21:00.  Þangað eru allir velkomnir, skyldir og óskyldir, vinir og kunningjar, vonumst til að sjá sem flesta.  Léttar veitingar, harmonikkuleikur, diskó & fjör.

Nefndin.
 Ps. úr síðasta hálfraraldar afmæli á Seli, Frú Agnes Böðvarsdóttir (í rauðu) í góðum gír.



» 4 hafa sagt sína skoðun

31.12.2008 17:18:56 / sydrasel

áramóta kveðja


 Elsku ættingjar, vinir og aðrir fylgi fiskar
 Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir öll gömlu árin:lol:
 hiyttumst og heyrumst hress á nýju ári
 ástar kveðjur úr sveitinni
 Agnes og Valdi

» 1 hafa sagt sína skoðun

29.12.2008 18:15:52 / sydrasel

Afmæliskveðja

Ægir Garðar á afmæli í dag, hann er víst 43 ára drengurinn.... nei smá grín  33 ára er hann víst he he
TIl hamingju með daginn, vona að hann hafi verið góður og að fjölskyldan hafi dekrað við þig :)

kv. Fjóla Sigrún


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.12.2008 11:17:55 / sydrasel

Jólakveðja.



» 1 hafa sagt sína skoðun

18.12.2008 18:46:20 / sydrasel

Hann er 40 ára í dag han er fertugur í dag

Elsku Böðvar Bjarki :)
Innilegar hamingju óskir með daginn
Hlakka til að mæta í opið hús hjá þér á laugardaginn
Hafðu það sem allra allra best
Jóla og afmælis kveðja
 Agnes og Valdi:lol:

» 2 hafa sagt sína skoðun

17.12.2008 21:41:03 / sydrasel

Böðvar Bjarki 40 ára á morgun :)

Elsku frændi,innilega til hamingju með 40 ára afmælið. Bestu kveðjur frá Láru Jónu frænku  

» 0 hafa sagt sína skoðun

05.12.2008 20:40:30 / sydrasel

Fjóla Sigrún 28 ÁRA AFMÆLI

Sæl Fjóla mín,
innilega til hamingju með afmælið þitt í dag  elskan, 
vona að þú eigir góðan dag og framtíð.
þess óskar þín yndislega frænka Lára Jóna

» 1 hafa sagt sína skoðun

05.12.2008 14:55:06 / sydrasel

Hún á afmæli ídag, hún á afmæli í dag !!!!!!!!

:lol:Elsku Fjóla Sigrún okkar!
Innilega til hamingju með daginn!
hafðu það sem allra best og njóttu dagsins vel.
Ætla að koma í kaffi til þín á morgunn,( ef við snjóum ekki í kaf!!;)
það snjóar og snjóar og snjóar, bara jólalegt !
ástar kveðjur úr sveitinni
 Agnes og Valdi

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Dagsetning
9. febrúar 2010
Klukkan
Könnun

Engin könnun í gangi, athugaðu aftur seinna.
Heimsóknir
Í dag:  7  Alls: 6372